Endurgjaldslaust

Þú ert mín gleði,
mín skelfing og vá.
Ég hef lagt allt að veði
án þess að fá
skref móti skrefi,
eitt einasta svar.
Ef hjá þér er efi
liggur meinið alltaf þar.

En það sem reynist mér um megn
er að koma því í gegn:
Ef traust þitt ei finn
þá er týndur grunnurinn.
Þegar við hliðina á mér ert
þá er samt eins og þú sért
fjarlæg.

Ég get ekki gefið endalaust
gefið endalaust
gefið endalaust
endurgjaldslaust.

Þú ert minn morgunn
mín dimmasta nátt
en ef þetta er þín borgun
mig þverr allan mátt.
Því eitt er að heita
bjartari tíð
en ef lausna viltu ei leita
betrumbóta ei lengur bíð.

Ég get ekki gefið endalaust
gefið endalaust
gefið endalaust
endurgjaldslaust
því að þung er sú byrði
að finna ei þitt traust.

 

Lag: Jón Jónsson
Texti: Einar Lövdahl Gunnlaugsson