Á sama tíma, á sama stað

Það er á þessum tíma ársins
Sem ég hugsa alltaf mest til þín
Til þín og ferðalagsins
Dagsins þegar þú komst fyrst til mín

Og ég veit að þú veist að þó höfin skilji okkur að
Við eigum alltaf þennan stað
Og ég veit að þú veist að þó höfin skilji okkur að
Við eigum alltaf þennan stað

Þú finnur mig þar, alveg sama hvað
Finnur mig þar
Þú finnur mig þar, alveg sama hvað
Finnur mig þar
Á sama tíma á sama stað
Á sama tíma á sama stað
Finnur mig þar
Á sama tíma á sama stað

Nú hef ég ekki séð þig lengi
En mikið væri notalegt
Ef ég aðeins fengi
Að vera á ný þar sem þú ert

Því ég veit að þú veist að þó höfin skilji okkur að
Við eigum alltaf þennan stað
Og ég veit að þú veist að þó höfin skilji okkur að
Við eigum alltaf okkar stað

Þú finnur mig þar, alveg sama hvað…

Og við eigum, og við eigum
Þessa stund og þennan stað
Og við eigum, þessa stund í Herjólfsdal

Þú finnur mig þar, alveg sama hvað…


Song and lyrics: Friðrik Dór & Jón Jónsson