Segðu já

Ég er alveg sjúkur,
svo meyr og svo mjúkur,
limir og búkur
vilja þig.

Og eins gerir hjarta,
vill brosið þitt bjarta
svo nóttin sú svarta
öðlist lit.

Æ, bara,
segðu já.
Ó, elskan,
segðu já.
Mín kæra,
segðu já.
Ó, segðu já.

Svo það sé á tæru
ef augun þín skæru
af mér ei færu
væri ég.

Svo hamingjusamur,
kannski eilítið framur,
þó prúður og tamur
þér við hlið.

 

Lag og texti: Jón Jónsson