Sátt

Mér finnst við verðskulda
saman að upplifa
sanna hamingjuna
svo höldum í kærleikann.

Þótt komi upp aðstæður
er kólna okkar glæður
skynsemin þá ræður
svo höldum í kærleikann.

Höfum átt erfiðan dag.
Finnum sátt, samkomulag.

Sestu mér hjá, skulum kafa ofan í kjölinn.
Okkur varð á og nú burtu skal kvölin.
Hættum að slást, kjósum umhyggju og ást.
Höldum í kærleikann
og á ný finnum neistann.

Ég veit hve ég heppinn er
að deila lífi með þér.
Geri því hvað sem er
til að halda í kærleikann.

Höfum átt erfiðan dag.
Finnum sátt, samkomulag.

Sestu mér hjá, skulum kafa ofan í kjölinn.
Okkur varð á og nú burtu skal kvölin.
Hættum að slást, kjósum umhyggju og ást.
Höldum í kærleikann
og á ný finnum neistann.
Ég mun gera allt sem ég kann
því þér ég einni ann.

 

Lag og texti: Jón Jónsson