Dag eftir dag

Er við hittumst fyrst við vorum ung að árum,
ég sagði hæ en halló var þitt svar.
Lífsins þunga þanka fáa bárum
en nýjar voru tilfinningarnar.
Bros gat hæglega orðið að tárum
en við sem par, virði áhættunnar.

Dag eftir dag
dag eftir dag
dag eftir dag
hafði á þér augastað.
Dag eftir dag
dag eftir dag
dag eftir dag
ég tók eitt skref þér að.

Við hugmyndina um okkur lengi gældi,
var vandvirkur, fór varlega þér að.
Ég laumulega daðraði og lygilega pent þér hældi.
Hafði alltaf á þér augastað.
Að endingu ég loksins í þig nældi,
lukkudísum þakka fyrir það.

 

Lag: Jón Jónsson
Texti: Jón Jónsson & Einar Lövdahl Gunnlaugsson