Dýrka mest

Góðan daginn, ert’ekk’að djóka
þarna er gamla góða gula upp’að spóka sig
Allt í góðu lagi, já allt í blóma
Þó að sólin hverfi fæ ég samt að horfa á þig

Þú ert óaðfinnanleg
og ég finn að mér
bara líður alltaf vel
þegar ég er með þér

Ég dýrka þegar sólin fer að skína
Ég dýrka þegar blómin springa út
Ég dýrka þegar úti fer að hlýna
En staðreyndin er sú, jú
Það sem ég dýrka mest ert þú

Ég dýrka þig í sólstöfum
og ég dái þig í viðvörun
Ég dýrka þig í smá skömmtum
og ég þrái þig í bílförmum


Lag og texti: Jón Jónsson