heltekur minn hug

Ég gáði þá
en sá
þú varst ei tilbúin
til að mögulega eiga með mér stefnumót.

En nú
ert þú
enn sú sem mig langar til að
gefa undir fót.

Fæ ég tækifæri til
að segja á þránni minni skil?
Fyrirgefðu, afsakið
en þetta þolir enga bið.

Því þú heltekur minn hug.
Þú, um þig, frá þér, til þín, mitt hugarflug.
Já, þú heltekur minn hug.
Öðrum hugsunum ég vísa á bug.

Ef nei,
ég ei
mun sveia þér eða gráta
heldur þakka fyrir mig en samt þó vonast til

að fá
að sjá
tær og skær augun þín blá.
Ó, svo tilkomumikil.

Fæ ég tækifæri til ...

 

Lag: Jón Jónsson
Texti: Jón Jónsson & Einar Lövdahl Gunnlaugsson