ykkar koma

Ykkur alltaf dýrka mun og dá,
dýrðin er fær hjartað til að slá.
Tilveran er meiriháttar merk.
Ykkar koma lífsins kraftaverk.

Nærveran svo notaleg og hlý.
Kraumar í mér kennd svo góð og ný.

Sú nýja ást
af mér mun aldrei mást.

Með væntumþykju lýsi ykkar veg.
Vegna ykkar andann glaður dreg.
Saklaus hlátur, hlýr sem bætir geð
Sá er hamingjunnar blómabeð.

Nærveran svo notaleg og hlý.
Kraumar í mér kennd svo góð og ný.

Sú nýja ást
af mér mun aldrei mást.

 

Lag og texti: Jón Jónsson