LJÚFT AÐ VERA TIL

Í Herjólfsdalnum við lífsins njótum
Það  er svo ljúft að vera til
Vináttuörvum allt í kring skjótum
Samveran veitir birtu' og yl

Hér er hamingja, ást og gleði
Stemningin í dalnum er svo blíð
Forréttindi að vera með í
Veisluhöldunum á Þjóðhátíð

Eyja meyja og peyja,
lof mér að segja
Ó, hve ljúft það er að vera til

Í bleikri brekkunni við syngjum saman
Svo ljúft að vera þér við hlið
Í þínum örmum, svo hlýtt svo gaman
Vor bjarta framtíð blasir við

Hér er hamingja, ást og gleði
Stemningin í dalnum er svo blíð
Forréttindi að vera með í
Veisluhöldunum á Þjóðhátíð

Eyja meyja og peyja,
lof mér að segja
Ó, hve ljúft það er að vera til

Eyja meyja og peyja,
lof mér að segja
Ó, hve ljúft það er að vera til
Ó, hve ljúft það er að hafa þig
Ó, hve ljúft það er að vera' á Þjóðhátíð


Lag og texti: Jón Jónsson