Gefðu allt sem þú átt

Á meðan meðbyr blæs
gríptu þá þessa gæs.
Á morgun mögulega allt er liðið hjá.
Stefnirðu á næsta stig
þú þarft að reyna á þig.
Þú veist það stoðar lítt að bíða bara og sjá.

Svo gefðu allt sem þú átt.
Ekkert án erfiðis fæst.
Gefðu allt sem þú átt.
Þannig markmiðið næst.
Gefðu allt sem þú átt.
Draumurinn getur ræst.

Þér fannst þú fjarri í gær
en núna mjakast nær.
Á morgun dyrnar munu glennast upp á gátt.
Því ef þú gefur allt
þú uppskerð þúsundfalt.
Sá sigur er sætastur sem þú veist þú skilið átt.

Svo gefðu allt sem þú átt...

Áður virtist það vandi.
Þú núna færist nær landi
og þá er alveg sem það standi
skrifað í skýin.

Svo gefðu allt sem þú átt...

 

Lag: Jón Jónsson
Texti: Einar Lövdahl Gunnlaugsson